top of page

BYGGINGAR

FYRIR FÓLK 

Öflugt teymi sérfræðinga með áratuga reynslu. Fagleg ráðgjöf til opinberra stofnana, fyrirtækja og einstaklinga varðandi innivist, loftgæði, rakaskemmdir, myglu, orkunýtingu, byggingareðlisfræði, sjálfbærni og vistvottun.

Þjónusta

Sérfræðingar okkar hjá VERKVIST er leiðandi á sviði rakaástands bygginga, innivistar, rakaskemmda, loftgæða, sjálfbærni, vistvottana og heilnæmi bygginga. Teymið samanstendur af sérhæfðum ráðgjöfum úr húsasmíði, verkfræði, tæknifræði, líffræði og lýðheilsu. 

Við skiljum mikilvægi þess að skapa umhverfi sem er heilsusamlegt, öruggt og örvandi fyrir alla.

Saman getum við skapað framúrskarandi rými sem styður við bæði umhverfið og velferð notenda.

Viðskiptavinir okkar eru arkitektar, hönnuðir, opinberar stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar og leggjum við metnað okkar í að veita faglega og heiðarlega ráðgjöf.

Við bjóðum upp á lausnir sem eru sérsniðnar að einstökum þörfum og markmiðum hvers viðskiptavinar og veitum persónulega þjónustu. 

Við hvetjum þig til að hafa samband til að fræðast nánar um hvernig VERKVIST getur stutt þig eða þitt fyrirtæki í að ná framúrskarandi árangri til að bæta innivist eða ná fram vistvænum byggingum á ábyrgan og heilbrigðan hátt,

Mygluskoðun

Mat á loftgæðum með síritum sem nema C02, VOC, Svifryk, mengun frá umferð, birtu og hávaða.

Viðtal

Ástandsskoðun, rakaskimun og sýnataka vegna gruns um rakavandamál eða myglu. DNA ryksýni til að fá stöðuna á loftbornum örverum .

Teymið

VERKVIST samanstendur af einstöku teymi með yfirgripsmikla, þverfaglega þekkingu og reynslu. Rík áhersla er lögð á að byggingar eru fyrir fólk, heilsa og vellíðan eru í fyrirrúmi og að vistspor bygginga sé lágmarkað. 

 

Teymið er ört stækkandi og erum við spennt  fyrir að kynna þá sérfræðinga til leiks eftir því sem á líður.

Hafa samband

Hallgerðargata 13   105 Reykjavík

Takk fyrir að hafa samband

bottom of page